SNÖGGIR AÐ GERA VIÐ

SNÖGGIR AÐ GERA VIÐ

Í óveðri í fyrradag, fauk vindmælirinn í Sandfelli í Öræfum.  Vegagerðin var ekkert að tvínóna við viðgerðir, sendi verktaka sína á staðinn eins og skot og í gær kl. 13 var búið að koma fyrir nýjum mæli eins sjá má á skjáskoti vindmælinganna af vef Vegagerðarinnar.  Eða rétt áður en næsti N-hvellur skall á!